Ég er grafískur hönnuður, matartæknir og markþjálfi með endurvinnslu á heilanum.
Síðan ég man eftir mér hef ég verið að skapa, klippa líma og mála og ástríða min liggur í því að kenna konum að finna sig í sköpun.
Nýtt efni í hverjum mánuði.
Viltu fá allskonar hugmyndir og læra allavega tækni til að breyta hlutum úr geymslunni í gersemi. Læra að útbúa gjafir, kort og skemmtilegar pakkningar.
Taka þátt í málningartækni áskorun og mála falleg málverk.
Fá innsýn í að búa til þínar eigin snyrtivörur úr hráefni sem líklega er til heima hjá þér nú þegar.
Og margt fleira.
Um leið og þú hefur skráð þig færðu aðgang að öllu efni sem komið hefur inná klúbbinn frá upphafi og þú getur byrjað að skapa.
Já takk, minn tími er kominn.NÝJUNG - Nú býð ég uppá að koma í heimsókn til hópsins þíns og kenna ykkur að búa til ykkar eigin húð/snyrtivörur.
Þetta er alger nýjung hjá mér, nú getur þú keypt örnámskeið á netinu og fengið senda pakkningu heim með því sem til þarf til að gera vöruna sem er á námskeiðinu.
Skráðu þig hér og við kennum þér að búa til dásamlegt frískandi eiturefnalaust andlitsmisti.
Bestu gjafirnar finnst mér vera upplifanir og þess vegna útbjó ég vefbók með 34 hugmyndum af upplifunum sem þú getur prentað út og gefið. Alger snilld :)
Viltu læra að búa til þínar eigin eiturefnalausu snyrtivörur úr hráefnum sem auðvelt er að nálgast.
"Hvað hefur þú fengið út úr því að vera í Klúbbnum: „Hvatning, lætur mig sjá hvað er hægt að gera úr svo mörgu sem ég á heima. Skemmtilegt og lætur mér líða vel. Takk fyrir að gera þennan klúbb að veruleika fyrir okkur hin sem erum ekki eins hugmyndarík."
"Námskeiðið vakti svo sannarlega áhuga minn á að útbúa glaðning sem gjöf frá mér til þeirra sem mér þykir vænt um. Bryndís gaf mér svo sannarlega frábærar, einfaldar og fallegar hugmyndir sem hún miðlar af mikilli alúð. Ég á eftir að nýta mér þessar hugmyndir og aðferðir og ekki sýst hafa gaman að því að búa þær til. Takk innilega fyrir mig."
"Þetta er svakalega skemmtilegt, ég er búin að vera á leiðinni að födra ymislegt svo lengi. Þú komst mér algerlega af stað😊 og allt dótið sem maður á og vissi ekki af hverju ég var að geyma ,,,, þetta er svo skemmtilegt 😊 takk fyrir"
"Hef notið þess að horfa kennsluna þína , sumt hef ég prófað og þótt skemmtilegt. Haltu áfram kæra Dísa að miðla til okkar .Takk fyrir mig. Hjartans þakkir fyrir mig. Hlakka alltaf til þegar nýtt efni kemur frá þér."
"Hvað hefur þú fengið út úr því að vera í Klúbbnum?: „Gleði og hamingju vissi ekkert hvað ég var að fara út í þegar ævintýrið hófst elska að föndra og endurnýta. Hver kafli hefur verið óvænt ánægja og hefur verulega létt mér lífið á þessum undarlegu tímum sem við lifum á núna. Takk fyrir mig "
50% Complete
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit, sed do eiusmod tempor incididunt ut labore et dolore magna aliqua.